Boga á þing !

Ég hlustaði á Bylgjuna í morgun á leið til vinnu, sem oftar, þar voru Bogi Ágústsson og Björn Ingi gestir Heimis o.co.

Og enn og aftur heillaði Bogi mig, hann er algjörlega heilsteyptur og bara....eftir mínu höfði, hreinskilinn, vel að sér, sanngjarn, þenkjandi.....mig skortir lýsingarorð.

Við þurfum einmitt menn eins og Boga núna, heiðarlega og ábyrga.

Skemmtileg þessa vika á Bylgjunni, eingöngu jákvæð umfjöllun, ekki veitir okkur af.

Heyrði einmitt viðtal við Pétur Blöndal, sem er jú skrítin skrúfa, hann hefur húmor kallinn !

Annars mætti halda að veðurguðirnir hafi eitthvert samband hingað, því að veðrið hefur aldeilis leikið við okkur og verður samkvæmt spám svona áfram....Áfram Ísland !


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Bogi og Jóhanna Vigdís eru uppáhalds fréttafólkið mitt.

En ef Bogi fer á þing, þá er enginn almennilegur kall eftir til að sjá um fréttaflutning. Væri það ekki synd?

Maja Solla (IP-tala skráð) 11.3.2009 kl. 19:56

2 Smámynd: Stefanía

Æ jú....

Stefanía, 12.3.2009 kl. 02:09

3 Smámynd: Bjarni Harðarson

heyrði ekki viðtalið en ég er sammála að þau bogi og jóhanna vigdís eru bæði mjög flott.

Bjarni Harðarson, 20.3.2009 kl. 22:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband